Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. júlí 2019 08:11
Magnús Már Einarsson
4. deild: Úrslit gærkvöldsins samkvæmt bókinni
Úr leik Kríu og KFR í gærkvöldi.
Úr leik Kríu og KFR í gærkvöldi.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu fyrir Hvíta Riddarann.
Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu fyrir Hvíta Riddarann.
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Fimm leikir voru á dagskrá í 4. deild karla í gærkvöldi. Öll úrslit kvöldsins voru samkvæmt bókinni en liðin sem voru ofar í töflunni unnu þau sem voru neðar.

B riðill
HvÍti Riddarinn skellti sér í toppsætið í B-riðli með 3-1 útisigri á ÍH. Eiríkur Þór Bjarkason skoraði þrennu í þeim leik en hann er kominn með sextán mörk í níu leikjum í sumar. KB vann KM 4-2 á heimavelli með tveimur mörkum í lokin en Breiðhyltingar eru í 4. sæti riðilsins. Það skyggði þó á sigur KB þegar Örn Þór Karlsson fór illa meiddur af velli í síðari hálfleik.

ÍH 1 - 3 Hvíti Riddarinn
0-1 Eiríkur Þór Bjarkason ('19)
0-2 Eiríkur Þór Bjarkason ('49)
1-2 Sigurður Þór Kjartansson ('72)
1-3 Eiríkur Þór Bjarkason ('76)

KB 4 - 2 KM
1-0 Eyþór Atli Guðmundsson ('15)
2-0 Ásbjörn Freyr Jónsson ('36)
2-1 Aakash Gurung ('49, sjálfsmark)
2-2 Ronald Andre Olguín González ('59)
3-2 Kjartan Andri Baldvinsson ('88)
4-2 Aron Fuego Daníelsson ('90)

C-riðill:
Berserkir eru í fjórða sæti í C-riðli eftir heimasigur á Létti. Fjögur stig eru í Hamar í öðru sætinu og Berserkir því ennþá í möguleika á að fara í úrslitakeppnina.

Berserkir 3 - 1 Léttir
1-0 Andri Steinn Hauksson ('24)
2-0 Marteinn Briem ('68)
2-1 Ástþór Ingi Runólfsson ('78)
3-1 Steinar Ísaksson ('74)

D-riðill:
Topplið Ægis burstaði botnlið Kóngana 9-0 en staðan í hálfleik var 1-0. KFR eltir toppliðin áfram eftir 3-1 útisigur á Kríu á Seltjarnarnesinu.

Kóngarnir 0 - 9 Ægir
0-1 Einar Ísak Friðbertsson ('20)
0-2 Goran Potkozarac ('46)
0-3 Einar Ísak Friðbertsson ('54)
0-4 Goran Potkozarac ('57)
0-5 Þorkell Þráinsson ('64)
0-6 Ásgrímur Þór Bjarnason ('69)
0-7 Goran Potkozarac ('72)
0-8 Ásgrímur Þór Bjarnason ('76)
0-9 Goran Potkozarac ('90+3)

Kría 1 - 3 KFR
0-1 Jóhann Gunnar Böðvarsson ('9)
0-2 Hjörvar Sigurðsson ('56)
1-2 Stefán Örn Stefánsson ('75)
1-3 Helgi Ármannsson ('85)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner