Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 18. júlí 2019 12:15
Magnús Már Einarsson
Andstæðingar Vals eru með örn sem lukkudýr
Valur heimsækir Ludogorets 1. ágúst.
Valur heimsækir Ludogorets 1. ágúst.
Mynd: Hulda Margrét
Valur mætir búlgörsku meisturunum í Ludogorets Razgrad í 2. umferð Evrópudeildarinnar en þetta varð ljóst eftir að bæði lið duttu út í fyrstu umferð í Meistaradeildinni.

Ludogorets tapaði 3-2 gegn Ferencvaros frá Ungverjalandi á heimavelli í gær eftir að hafa tapað fyrri leiknum 2-1.

Ludogorets er með örninn Fortuna sem lukkudýr en fuglinn flýgur inn á heimavöll liðsins fyrir alla leiki.

Um er að ræða hugmynd frá Lazio á Ítalíu en þar er einnig örn lukkudýr.

Fyrir leikinn í gær villtist örninn og flaug upp á þak til myndatökumanns. Það virtist ekki boða gæfu því Ludogorets tapaði leiknum eins og áður segir.




Athugasemdir
banner
banner