„Við byrjuðum ekki nógu vel og það var eins og það væri eitthvað andleysi í okkur, sem er mjög ólíkt okkur. En svo var stígandi í þessu hjá okkur út fyrri hálfleikinn og í seinni hálfleik áttu þær held ég ekki færi. Þetta var bara baráttusigur hjá okkur,“ sagði Erna Guðrún Magnúsdóttir, fyrirliði toppliðs FH, eftir 3-1 sigur á Aftureldingu í Inkasso-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 3 - 1 Afturelding
Lið FH átti í erfiðleikum með pressu Aftureldingar framan af leik en komst í góða stöðu á lokasekúndum fyrri hálfleiksins þegar Helena Ósk Hálfdánardóttir náði forystu fyrir liðið með góðu marki.
„Þá gat maður aðeins slakað á. Þetta var hrikalega flott hjá Helenu og það var gott að komast inn í hálfleikinn 2-1 yfir,“ sagði Erna.
Nú er mótið hálfnað og FH-ingar sitja á toppi deildarinnar. Erna
Guðrún og FH-ingar eru staðráðnar í að halda toppsætinu út mótið.
„Við byrjuðum mótið ekki eins og við vildum en ætlum að svara fyrirr það og stefnan er sett á að vinna alla leikina.“
Hægt er að horfa á allt viðtalið við Ernu Guðrúnu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir