Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 18. ágúst 2018 16:46
Ísak Máni Wíum
Binni Gests: Ég er ekki á Twitter, ég er "old school"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skaginn er gott fótboltalið en við vorum inn í þessum leik allan tímann. Við vorum klaufar í báðum mörkunum og hefðum ekki átt að fá þessi mörk á okkur."

Sagði Brynjar Þór Gestsson þjálfari ÍR eftir 2-0 tap gegn ÍA í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 0 -  2 ÍA

Mér fannst þeir ekki vera að skapa sér neinn skapaðan hlut fyrr en þeir skora seinna markið og þá opnast þetta svolítið hjá okkur og við fáum rautt spjald. Við vorum óheppnir að skora ekki í byrjun seinni hálfleiks þegar Brynjar Óli gerir vel og kemur sér í gott færi."

ÍR voru alveg brjálaðir undir lok fyrri hálfleiks þegar þeir vildu fá víti og Binni var ekki sáttur með ákvörðun dómarans.

Við áttum að fá púra víti og ég bara alveg hættur að botna í þessu. Það virðist engu máli skipta hvernig brotin eru og hversu augljós þau eru. þetta bara fær að sigla og það er hundfúlt."

Það voru gerðar sjö breytingar á liðið ÍR fyrir leikinn og menn sem hafa spilað minna í sumar komu inn.

Við nýtum bara hópinn, það er spilað ansi skart núna, fjórir leikir á fjórtán dögum. Við búum bara það vel að þetta er jafn hópur og menn geta stigið inn fyrir hvorn annan. Þeir sem spiluðu í dag áttu það fyllilega skilið."

Binni hefur sankað að sér nokkrum aðdáendum á Twitter fyrir skemmtileg viðtöl í sumar.

Ég er ekki á Twitter ég er old school, ég rétt kann á Facebook og get sent skilaboð, það er nóg."
Athugasemdir
banner
banner