Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 18. ágúst 2018 18:40
Arnar Daði Arnarsson
Brynjar Björn: Verðum að tryggja okkur sæti í deildinni fyrst
Brynjar Björn þjálfari HK.
Brynjar Björn þjálfari HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég bjóst við allt öðruvísi leik og við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir leikinn. Við fórum yfir okkar möguleika á vellinum og það gekk eftir. Fyrstu tvö mörkin og jafnvel það þriðja líka komu uppúr því," sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK eftir 4-1 sigur sinna manna gegn Þór í toppbaráttuslag í 17. umferð Inkasso-deildarinnar.

Lestu um leikinn: HK 4 -  1 Þór

„Þetta var gríðarlega vel spilað hjá okkur og við skiluðum hrikalega góðu dagsverki í dag."

Brynjar Jónasson og Zeiko Lewis skoruðu báðir tvö mörk í leiknum. Seinna mark Zeiko Lewis var í vandaðri kantinum en leikmaðurinn er á láni frá FH.

„Við vonuðumst eftir og vissum að Zeiko Lewis myndi gefa okkur aðeins öðruvísi faktor með sínum hraða og hann er tæknilega mjög góður og hann sýndi það í dag að hann er góður leikmaður."

HK mætir ÍA í næstu umferð en Skaginn er á toppi deildarinnar með stigi meira en HK. Toppsætið er því í húfi í þeim leik.

„Þetta verður skemmtilegra og skemmtilegra með hverjum leiknum. Við mætum þar galvaskir en að sama tíma berum við virðingu fyrir þeirra liði .Þeir hafa staðið sig vel í sumar en við förum í alla leiki til að vinna þá. "

En verður spilað í Kórnum í Pepsi-deildinni næsta sumar?

„Við verðum að tryggja okkur sæti í deildinni fyrst. Síðan er einhver ákvörðun þar sem einhver þarf að taka," sagði Brynjar Björn að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner