Cardiff og Newcastle gerðu markalaust jafntefli í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Brasilíumaðurinn Kenedy tekur fyrirsagnirnar en hann klúðraði vítaspyrnu á 96. mínútu. Hann hefði líklegast átt að fá rauða spjaldið fyrr í leiknum þegar hann sparkaði Victor Camarasa, miðjumann Cardiff, niður.
Kenedy fær 3 í einkunn hjá Sky Sports en einkunnirnar eru hér að neðan.
Cardiff: Etheridge (8), Morrison (5), Manga (6), Bennett (6), Bamba (6), Camarasa (6), Arter (6), Ralls (6), Murphy (8), Hoilett (5), Zohore (5). Varamenn: Reid (5), Mendez-Laing (5), Paterson (5)
Newcastle: Dubravka (6), Dummett (6), Clark (6), Lascelles (6), Manquillo (5), Ritchie (5), Diame (5), Shelvey (5), Kenedy (3), Perez (5), Joselu (5). Varamenn: Hayden (4), Murphy (5), Muto (5)
Maður leiksins: Josh Murphy.
Athugasemdir