Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. ágúst 2018 21:20
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Harry Kane: Mér fannst við spila mjög vel
Mynd: Getty Images
Harry Kane var á skotskónum í dag þegar Tottenham sigraði Fulham í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, Kane sem hafði aldrei skorað í keppnisleik í ágúst fyrr en í dag var ánægður með spilamennsku Tottenham.

„Mér fannst við spila mjög vel og við sköpuðum okkur mörg færi. En hrós til Fulham, við náðum ekki að ógna markinu þeirra að neinu ráði fyrr en eftir 60. mínútu."

„Mér leið um tíma þannig að þetta væri einn af þessum dögum sem ekkert gengur upp, en svona er líf framherjans," sagði Kane.

Tottenham er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina, í fyrstu umferð sigruðu þeir Newcastle á útivelli, 1-2. Í næstu umferð fara þeir í heimsókn á Old Trafford þar sem þeir mæta heimamönnum í Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner