lau 18. ágúst 2018 15:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Svava skoraði í átta marka leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svava Rós Guðmundsdóttir var enn og aftur á skotskónum í norska boltanum í dag.

Svava Rós skoraði fyrsta mark Roa í markaleik gegn Sandviken. Svava jafnaði metin í 1-1.

Þetta var hennar níunda mark í 14 leikjum í norsku úrvalsdeildinni. Hún kom til Roa frá Breiðabliki fyrir tímabilið og er hún að fara á kostum í Noregi.

Því miður fyrir Svövu þá fór leikurinn ekki nægilega vel, Roa tapaði 5-3; átta marka leikur.

Roa hefur tapað þremur leikjum í röð en liðið er í áttunda sæti af 12 liðum.

Svava Rós spáði í leiki umferðarinnar í Pepsi-deild kvenna. Smelltu hér til að sjá spá hennar.
Athugasemdir
banner
banner
banner