Spænski boltinn rúllaði af stað í gær og í dag voru þrír leikir á dagskrá, þar á meðal átti Barcelona leik sem varð deildarmeistari á síðasta tímabili.
Lionel Messi var á skotskónum í fyrsta leik Barcelona á tímabilinu og hann skoraði fyrsta mark leiksins í 3-0 sigri, Philippe Coutinho skoraði annað markið á 83. mínútu og Messi bætti svo við þriðja markinu í uppbótartíma.
Celta Vigo mætti fyrr í dag Espanyol þar sem 1-1 jafntefli var niðurstaðan.
Í viðureign Villarreal og Real Sociedad voru skoruð þrjú mörk og þar skoraði Juanmi sigurmark gestanna á 71. mínútu.
Barcelona 3 - 0 Alaves
1-0 Lionel Messi ('64 )
2-0 Philippe Coutinho ('83)
3-0 Lionel Messi ('90)
Celta Vigo 1 - 1 Espanyol
0-1 Mario Hermoso ('45 )
1-1 David Lopez ('51 , sjálfsmark)
Villarreal 1 - 2 Real Sociedad
1-0 Gerard Moreno ('16 )
1-1 Willian Jose ('40 )
1-2 Juanmi ('71 )
Athugasemdir