„Þetta var bara baráttuleikur og vinnusigur hjá okkur. Gríðarlega kærkomið," sagði Vigfús Arnar þjálfari Leiknir R. eftir sigur gegn Magna á Grenivík í dag.
Lestu um leikinn: Magni 0 - 1 Leiknir R.
Það var hart barist í leiknum.
„Það er frábært að vinna svona fótboltaleiki 1-0 og þurfa að hafa svona mikið fyrir því. Magni fór að tengja sendingar eftir markið og spila betur á milli sín og við vorum losaralegir í varnarleiknum. Við fórum yfir það í hálfleik og það gekk betur í seinni hálfleiknum að vera þéttari."
Leiknir fer í sjöunda sætið með 18 stig.
„Já gríðarlega mikilvæg 3 stig og mér líst bara vel á framhaldið, við eigum fimm erfiða leik eftir og við þurfum bara að halda áfram að taka hvern leik fyrir sig."
Víkingur Ó. er næsta verkerfni Leiknismanna.
„Líst bara mjög vel á það, alltaf gaman að spila við Ólsarana. Þeir eru nýbúnir að standa sig vel í bikarnum og það verður bara gaman að keppa við þá."
Hægt er að horfa á viðtalið í heild hér að ofan.
Athugasemdir