Chelsea og Leicester City eigast við í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 15:30 í dag en leikurinn fer fram á Stamford Bridge.
Olivier Giroud er fremsti maður í dag en Tammy Abraham sest á bekkinn og þá er Mason Mount í liðinu. Frank Lampard leitar að fyrsta sigrinum með liðið en það tapaði 4-0 í fyrstu umferðinni og þá tapaði liðið í vítakeppni gegn Liverpool í Ofurbikar Evrópu á miðvikudag þar sem Adrian varði víti Tammy Abraham.
Leicester stillir einnig upp afar öflugu liði en þar má sjá menn á borð við Jamie Vardy, Ayoze Perez, Youri Tielemans og James Maddison.
Byrjunarlið Chelsea: Kepa; Azpilicueta, Christensen, Zouma, Emerson; Jorginho, Kante, Pedro, Mount, Pulisic; Giroud.
Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Ricardo, Evans, Soyuncu, Fuchs, Choudhury, Ndidi, Tielemans, Maddison, Perez, Vardy
Athugasemdir