fim 18. ágúst 2022 07:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Vals í Slóveníu: Sæti í úrslitaleik í boði
Arna Sif og Anna Rakel byrja
Arna Sif og Anna Rakel byrja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 09:00 á íslenskum tíma á Sportni park Radenci í Slóveníu mæta Íslandsmeistarar Vals liði Hayasa frá Armeníu í undanúrslitum fyrstu umferðar í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Fótbolti.net fylgist með gangi mála með úrslitaþjónustu í beinni

Sæti í úrslitum 1. umferðarinnar er í boði og mætir sigurliðið í þessum leik sigurliðinu úr í leik Pomurje frá Slóveníu og Shelbourne frá Írlandi í úrslitum á sunnudag.

Engin breyting er á liði Vals frá sigri liðsins gegn Stjörnunni í undanúrslitum Mjólkurbikarsins og liðið er einnig óbreytt frá síðasta deildarleik.

Byrjunarlið Vals:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
5. Lára Kristín Pedersen
6. Mist Edvardsdóttir
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
11. Anna Rakel Pétursdóttir
13. Cyera Makenzie Hintzen
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
27. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir

Á bekknum eru þær Fanney Inga Birkisdóttir, Elín Metta Jensen, Brookelynn Paige Entz, Þórdís Elva Ágústsdóttir, Málfríður Anna Eiríksdóttir, Bryndís Arna Níelsdóttir, Lillý Rut Hlynsdóttir, Mariana Sofia Speckmaier, Mikaela Nótt Pétursdóttir og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir.

Sjá einnig:
Lélegar aðstæður í verkefni Vals - Á ekki að samþykkja svona bull
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner