Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. september 2022 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu atvikið: Skammarleg dýfa hjá Vinicius Júnior
Mynd: Getty Images

Vinicius Jr leikmaður Real Madrid var mikið milli tannana á fólki fyrir viðureign liðsins gegn Atletico Madrid þar sem hann varð fyrir kynþáttafordómum.


Stuðningsmenn Atletico Madrid gerðu sig seka um að halda því áfram á meðan á leiknum stóð í kvöld sem Real Madrid vann 2-1.

Vinicius var líflegur í leiknum og átti m.a. stórann þátt í öðru marki liðsins. Hann varð sér hins vegar til skammar þegar hann féll með tilþrifum þegar Reinildo Mandava leikmaður Atletico gaf honum olnbogaskot.

Höggið var ekki mikið en vissulega óþarfi hjá Mandava. Atvikið má sjá hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner