Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. október 2020 07:30
Victor Pálsson
Conte segir að heppnin hafi verið með AC Milan
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Inter Milan, segir að heppnin hafi verið með AC Milan í gær er liðin áttust við í Serie A.

Um var að ræða grannaslag af bestu gerð á San Siro en AC Milan hafði betur 2-1 með mörkum frá Zlatan Ibrahimovic.

Miðað við orð Conte þá áttu hans menn ekki skilið að tapa leiknum í gær.

„Það er leiðinlegt að hafa tapað leik sem var vel spilaður af okkar hálfu. Þeir voru góðir en líka svolítið heppnir," sagði Conte.

„Við sköpum mörg tækifæri í leikjum til að skora mörk. Við þurfum að nýta þau betur. Á sama tíma þá get ég ekki kennt strákunum um neitt."

„Þeir reyndu alveg út leikinn en heppnin var ekki með okkur."

Athugasemdir
banner
banner