Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. október 2021 13:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Þungavigtin/433 
Jason Daði til reynslu hjá AGF í nóvember
Jason Daði
Jason Daði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jason Daði Svanþórsson, leikmaður Breiðabliks, er á leiðinni á reynslu til AGF í Danmörku. Kristján Óli Sigurðsson greindi frá þessu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin og 433.is vekur athygli á þessu.

Jason Daði gekk í raðir Breiðabliks eftir síðasta tímabil frá uppeldisfélagi sínu, Aftureldingu. Jason er 22 ára kantmaður og átti gott tímabil með Breiðabliki sem var hársbreidd frá því að verða Íslandsmeistari.

Hjá AGF eru landsliðsmennirnir Jón Dagur Þorsteinsson og Mikael Neville Anderson.

Í stuttu samtali við Fótbolta.net staðfesti Jason að hann færi út í lok nóvember og yrði til reynslu í viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner