Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 18. október 2021 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markvörður Norwich með eistnakrabbamein
Barden spilaði fjóra leiki með Norwich á síðustu leiktíð.
Barden spilaði fjóra leiki með Norwich á síðustu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Dan Barden, markvörður Norwich, hefur verið greindur með eistnakrabbamein.

Þessi tvítugi markvörður hefur síðustu vikur verið á láni hjá Livingston í skosku úrvalsdeildinni, en mun núna taka sér frí frá fótbolta.

„Það var mikið sjokk fyrir mig að fá greininguna en það jákvæða er að við náðum að finna þetta snemma," segir Barden við heimasíðu Norwich.

Barden spilaði fjóra leiki fyrir aðallið Norwich á síðasta tímabili og spilaði einn leik fyrir Livingston á þessu tímabili.

Hann segist vera viss um að hann muni ná að sigrast á krabbameininu og vonast hann til að byrja að spila fótbolta á nýjan leik fljótlega.
Athugasemdir
banner
banner
banner