Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 18. október 2021 19:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reguilon um óhugnarlega atvikið: Ég varð mjög stressaður
Mynd: Getty Images
Það kom upp mjög óhugnarlegt atvik í leik Newcastle og Tottenham í gær er stuðningsmaður hneig niður í stúkunni.

Sergio Reguilon leikmaður Tottenham tók eftir því og bað dómarann um að stöðva leikinn. Læknateymi Tottenham kom með hjartastuðtæki upp í stúku og eftir langan tíma tókst að koma hjarta mannsins af stað.

Hann var stendur á sjúkrahús og ástand mannsins er talin stöðugt.

Reguilon tjáði sig um atvikið í viðtali við Sky Sports eftir leikinn.

„Ég sá mann liggjandi og konu vera gera hjartahnoð. Ég varð mjög stressaður og fór til dómarans, við getum ekki spilað, þú verður að stöðva leikinn. Það mikilvægasta er að það er í lagi með hann núna, sagði Reguilon.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner