Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. október 2021 19:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zaha ekki með vegna veikinda
Mynd: Getty Images
Arsenal er með 1-0 forystu í hálfleik gegn Crystal Palace en besti maður Palace á leiktíðinni, Wilfried Zaha er fjarverandi vegna veikinda.

Þetta staðfesti Arsenal goðsögnin og þjálfari Crystal Palace, Patrick Vieira í samtali við Sky Sports fyrir leikinn.

Zaha lék með Fílabeinsströndinni gegn Malaví fyrir viku síðan en Vieira segir að honum hafi ekki liðið nógu vel er hann kom til baka og hefur ekkert æft með liðinu í aðdraganda leiksins í kvöld.

„Hann kom eftir landsleikjahléið og leið ekki nógu vel. Hann hefu ekkert æft svo við ákváðum að hann yrði heima. Honum líður betur en ekki nógu vel til að taka þátt í leiknum. Við erum með leikmenn sem geta gert vel og leikmenn sem bíða eftir tækifæri," sagði Vieira.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner