Fotbolti.net
18.10.22 - 18:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Potter: Mount hefur allt til að vera með þeim bestu

Potter: Mount hefur allt til að vera með þeim bestu
Canon

Mynd: Getty Images

Mason Mount leikmaður Chelsea skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri liðsins á Aston Villa um helgina.

Þetta voru fyrstu mörk hans á tímabilinu en fyrir var hann með tvær stoðsendingar í deildinni.

Graham Potter stjóri liðsins var spurður út í Mount en hann sagðist ekki skilja efasemdaraddir um Mount.

„Hann er stórkostleg manneskja, elskar að spila fótbolta og elskar félagið. Sumir koma til mín og eru með blendnar tilfinningar í garð Mount. Mér finnst það skrítið, verandi utan að komandi, svo byrjar maður að vinna með honum og hann er með allt sem þarf til að vera með þeim bestu," sagði Potter.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.