Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. nóvember 2018 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Myndband: Mane fór grátandi af velli
Mynd: Getty Images
Sadio Mané leikmaður Liverpool gekk grátandi útaf vellinum eftir æfingaleik Senegal og Súdan á föstudaginn.

Leiknum lauk með 1-0 sigri Senegal en Ismaila Sarr skoraði sigurmarkið alveg undir lok leiksins, hann spilar með Rennes í frönsku úrvalsdeildinni.

Stuðningsmenn Liverpool og Senegal voru fljótir að blása þær sögusagnir upp á samfélagsmiðlum eftir leik að Mane hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum. Þær sögusagnir er nánast hægt að útiloka.

Stuðningsmenn Senegal púuðu á hann í leiknum eftir að hann klúðraði frábæru færi í seinni hálfleik.

Ekki er vitað hvort það hafi verið ástæða grátursins en ljóst er að tilfinningarnar hafa borið Mane ofurliði eftir leikinn.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan en Mane kemur í mynd eftir tæpa mínútu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner