Argentína gerði 2-2 jafntefli gegn Úrúgvæ er liðin mættust í Ísrael fyrr í kvöld.
Úrúgvæ komst tvívegis yfir í leiknum en Argentínumenn náðu að svara. Lionel Messi lagði fyrra jöfnunarmarkið upp með aukaspyrnu og skoraði það seinna sjálfur úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
Messi sýndi flotta takta í leiknum og hefur eitt myndband af honum vakið sérstaklega mikla athygli þar sem hann stendur þrjár tæklingar af sér með frábærum tilþrifum.
Messi hefur oft verið gagnrýndur fyrir að vera ekki jafn öflugur með landsliðinu og hann er hjá Barcelona. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að sýna ekki sigurvilja og metnað, en það er ekki að sjá hér.
Messi isn't normal pic.twitter.com/BGZwOpg2xX
— ً (@Ryan10i) November 18, 2019
Athugasemdir