Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. desember 2018 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Leicester og Man City: De Bruyne og Aguero byrja
Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne og Sergio Agüero eru báðir í byrjunarliði Manchester City sem heimsækir Leicester City í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins.

Heimamenn gera sjö breytingar á byrjunarliði sínu þar sem James Maddison og Marc Albrighton fara á bekkinn. Jamie Vardy er ekki í hóp vegna meiðsla.

Danny Ward ver mark heimamanna og kemur Caglar Soyuncu inn í byrjunarliðið ásamt Vicente Iborra sem tekur stöðu Nampalys Mendy.

Gestirnir breyta átta leikmönnum frá síðasta úrvalsdeildarleik og eru margir efnilegir drengir í byrjunarliðinu.

Varnarlína Englandsmeistaranna er öflug þar sem Kyle Walker og John Stones byrja báðir og þá er Riyad Mahrez á kantinum.

Leicester: Ward, Simpson, Soyuncu, Maguire, Fuchs, Choudhury, Iborra, Ndidi, Gray, Iheanacho
Varamenn: Jakupovic, Pereira, Morgan, Mendy, Albrighton, Maddison, Okazaki

Man City: Muric, Walker, Stones, Otamendi, Zinchenko, Garcia, De Bruyne, Foden, Diaz, Mahrez, Agüero
Varamenn: Ederson, Sterling, Gundogan, Delph, Jesus, Sandler, Nmecha
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner