Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Leicester tekur á móti Man City
Mynd: Getty Images
Fyrstu tveir leikir 8-liða úrslita enska deildabikarsins fara fram í kvöld þar sem Leicester tekur á móti Manchester City í úrvalsdeildarslag kvöldsins.

Hægt er að búast við sterkum byrjunarliðum á King Power leikvanginum en Leicester ætlar að leggja mikinn metnað í að reyna að vinna deildabikarinn í ár.

Man City getur aftur á móti teflt fram gífurlega sterku liði og hvílt sína helstu lykilmenn á sama tíma þrátt fyrir að vera án fimm leikmanna vegna meiðsla.

Middlesbrough, sem er meðal sterkustu liða Championship deildarinnar, tekur þá á móti C-deildarliði Burton.

Leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Sport 3.

Leikir kvöldsins:
19:45 Leicester - Manchester City (Stöð 2 Sport)
19:45 Middlesbrough - Burton (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner