Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 18. desember 2018 16:00
Magnús Már Einarsson
Kane: Kominn tími á að vinna titla
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji Tottenham, segir að kominn sé tími á að félagið taki næsta skref með því að landa titli. Tottenham mætir Arsenal í nágrannaslag í enska deildabikarnum annað kvöld.

„Miðað við hvert við erum komnir sem lið núna þá er þetta næsta skref fyrir okkur. Við þurfum að byrja að vinna titla," sagði Kane.

„Ef við vinnum þennan leik þá er annað erfitt lið farið út úr keppninni svo þetta er stórt tækifæri fyrir okkur og við erum spenntir fyrir því."

„Þetta er risastórt. Auðvitað mættum við þeim fyrir nokkrum vikum og þá unnu þeir okkur."

„Það er gott að mæta þeim svona fljótt aftur. Vonandi getum við unnið í þetta skipti. Þetta eru 8-liða úrslit gegn nágrannaliði úr London svo þetta gerist ekki mikið stærra."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner