Nemanja 'Nemó' Latinovic er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Grindavík.
Nemó spilaði sinn fyrsta leik fyrir Grindavík sumarið 2014 og hefur síðan þá gert 2 mörk í 26 leikjum fyrir félagið.
Nemó er fæddur 1995 og spilaði 15 leiki í Pepsi-deildinni í sumar er Grindvíkingar enduðu í tíunda sæti, sex stigum fyrir ofan fall.
„Það er alltaf gott þegar við erum að semja við okkar heimamenn, helst vildum við hafa eingöngu heimamenn í liðinu okkar, það vonandi styttist í þann tíma," segir á Facebook síðu knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Athugasemdir