Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. desember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Robertson sýnir Alisson stuðning eftir mistökin
Mynd: Getty Images
Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, hefur lýst yfir stuðnigni við markvörðinn Alisson eftir mistök hans gegn Manchester United um helgina.

Alisson hefur haldið hreinu í tíu af sautján deildarleikjum Liverpool á tímabilinu en hann gerði slæm mistök gegn United sem gáfu Jesse Lingard mark.

„Hann hefur verið ótrúlegur á þessu tímabili og við gerum öll mistök," sagði Robertson.

„Ef Mo Salah eða (Roberto) Firmino gera mistök þá kannski er þeim ekki refsað á hinum enadnum en ef markverðir gera mistök þá kostar það yfirleitt mark."

„Auðvitað er hann svekktur yfir þessu en hann kom sterkur til baka og við getum ekki kvartað yfir þessu. Hann bjargaði okkur á þriðjudagskvöld og við erum ennþá í Meistaradeildina út af honum."

Athugasemdir
banner
banner
banner