Gianfranco Zola, aðstoðarstjóri Chelsea, reiknar ekki með öðru en að Jose Mourinho snúi aftur í fótboltann fyrr en síðar.
Mourinho var rekinn frá Manchester United í morgun eftir tvö og hálft ár í starfi.
Mourinho var rekinn frá Manchester United í morgun eftir tvö og hálft ár í starfi.
„Þekkjandi karakterinn og persónuleikann hjá Jose þá vill hann kom mjög fljótt aftur til baka," sagði Zola á fréttamannafundi í dag.
„Ég vil óska honum alls hins besta í nýjum ævintýrum. Ég er viss um að hann mun eiga annað ævintýri annars staðar fljótlega."
„Nú til dags er hluti af starfinu að vera rekinn og það kemur fyrir alla. Allt frá litlum þjálfurum upp í stóra."
Athugasemdir