Fotbolti.net
18.12.22 - 15:40
Brynjar Ingi Erluson

Di María kemur Argentínu í 2-0 - „Eitt af bestu mörkum þessa móts hingað til"

Di María kemur Argentínu í 2-0 - „Eitt af bestu mörkum þessa móts hingað til"
Canon

Mynd: EPA

Netgíró
Argentína er komið í tveggja marka forystu gegn Frakklandi í úrslitaleik HM í Katar. Angel Di María skoraði markið eftir laglega skyndisókn.
Dayot Upamecano tapaði boltanum og var það Messi sem fann Alexis Mac Allister í hlaupinu hægra megin.

Hann kom með dásamlega sendingu fyrir markið á Di María sem kláraði færið listavel.

2-0 fyrir Argentínu gegn slökum Frökkum, sem hafa ekki einu sinni átt skot á markið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.