Fotbolti.net
18.12.22 - 20:04
Brynjar Ingi Erluson

Messi: Sjáðu hvað hann er fallegur

Lionel Messi með bikarinn fræga

Lionel Messi með bikarinn fræga

Canon

Mynd: EPA

Netgíró
Lionel Messi, besti leikmaður heimsmeistaramótsins, er yfir sig ástfanginn af HM-bikarnum, en hann vann hann í fyrsta skiptið á ferlinum eftir magnaðan úrslitaleik við Frakka í kvöld.
Messi var næst markahæsti maður mótsins með 7 mörk en var valinn bestur í athöfninni eftir leikinn.

Hann skoraði tvö í úrslitaleiknum og svo eitt lúmskt víti í vítakeppninni.

Þetta er bikarinn sem Messi hefur þráð alla sína ævi og nú er hann kominn í hendurnar á honum og ferillinn fullkomnaður.

„Það er klikkað að þetta gerðist á þennan hátt. Ég vildi þetta svo mikið og vissi að guð myndi færa mér bikarinn. Ég hafði það á tilfiningunni að þetta færi svona. Núna mun ég njóta,“ sagði Messi.

„Þetta var löng bið en hér er hann. Sjáðu hvað bikarinn er fallegur. Við þurftum að þjást en þetta hafðist. Við getum ekki beðið eftir að fara til Argentínu og sjá hversu klikkuð stemningin er í landinu,“ sagði hann ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.