Fotbolti.net
19.01.20 - 22:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hvenær gæti Liverpool unnið deildina?

Það er í raun bara tímaspursmál hvenær Liverpool tryggir sér titilinn.

Það er í raun bara tímaspursmál hvenær Liverpool tryggir sér titilinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er í rauninni aðeins tímaspursmál hvenær að Liverpool tryggir sér sigur í ensku úrvalsdeildinni, í fyrsta sinn í 30 ár.
Eftir 2-0 sigur á Manchester United í dag er Liverpool með 16 stiga forskot á toppnum og á leik til góða.

Liverpool hefur átt ótrúlegu gengi að fagna og unnið 21 af 22 deildarleikjum sínum á tímabilinu. Þá hefur liðið tekið 91 af síðustu 93 mögulegum stigum í deildinni. Magnað.

Á vefsíðunni Goal.com er farið yfir það í kvöld hvenær Liverpool mun mögulega tryggja sér titilinn.

Liverpool þarf í mesta lagi 30 stig til viðbótar til þess að tryggja sér titilinn. Ef Liverpool heldur áfram að ná í úrslit eins og þeir hafa verið að gera (og ef keppinautarnir vinna sína leiki) þá gæti Liverpool tryggt sér titilinn þann 4. apríl gegn Manchester City.

Manchester United vann titilinn árið 2001 þann 14. apríl og átti þá eftir að spila fimm leiki. Það er metið eins og er. Ef Liverpool vinnur titilinn þann 4. apríl þá væri það nýtt met, en liðið ætti þá sex leiki eftir.

Það er þá eins og gefur að skilja, ef Leicester og Manchester City, þau lið sem eru næst Liverpool í töflunni, halda áfram að tapa stigum, þá gæti Liverpool unnið titilinn enn fyrr.

Liverpool hefur átt ótrúlegt tímabil í deildinni til þessa og það verður fróðlegt að sjá hvort liðið geti bætt stigamet Manchester City (100 stig) og hvort liðið geti jafnvel farið ósigrað í gegnum tímabilið eins og Arsenal gerði 2003/04.

Jurgen Klopp er einbeittur eins og hann lét í ljós eftir sigurinn á United í kvöld. „Allir eiga að fagna stöðunni, nema við. Ekkert hefur breyst. Við erum í sömu stöðu, plús þrjú stig," sagði Klopp.

Næsti leikur Liverpool er útileikur gegn Úlfunum á fimmtudaginn.
Liverpool er á toppnum með 16 stiga forskot og leik til góða!

Liverpool er á toppnum með 16 stiga forskot og leik til góða!

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.