Átta úrvalsdeildarleikir fóru fram í gær og er hægt að sjá mörk og tilþrif úr leikjunum hér fyrir neðan. Myndskeiðin eru innfelld af vefsíðu MBL.
Nokkuð óvænt úrslit áttu sér stað þar sem Manchester City og Arsenal gerðu jafntefli á heimavelli á meðan Chelsea tapaði fyrir Newcastle og Tottenham gerði jafntefli við Watford.
Mesta skemmtunin var á Etihad leikvangi City þar sem lokamínúturnar voru rosalegar eða á St. Mary's þar sem Úlfarnir komu til baka og unnu Southampton eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik.
Aðeins voru skoruð 17 mörk í leikjum gærdagsins og komu 9 þeirra úr leikjunum á Etihad og St. Mary's.
Manchester City 2 - 2 Crystal Palace
Southampton 2 - 3 Wolves
Arsenal 1 - 1 Sheffield United
Newcastle 1 - 0 Chelsea
Watford 0 - 0 Tottenham
West Ham 1 - 1 Everton
Brighton 1 - 1 Aston Villa
Norwich 1 - 0 Bournemouth
Athugasemdir