Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. febrúar 2019 23:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Að Liverpool hafi 34.6% möguleika á að komast áfram
Mynd: Getty Images
Bayern München og Liverpool gerðu markalaust jafntefli á Anfield í Meistaradeildinni í kvöld. Um var að ræða fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Gracenote, sem fjallar um tölfræði og fleira, hefur tekið það saman að Liverpool eigi 34,6% möguleika á því að komast áfram í 8-liða úrslitin miðað við úrslitin í kvöld.

Gracenote byggir þessa tölfræði sína á úrslitum í gegnum söguna í Evrópukeppnum.

Bayern og Barcelona eiga samkvæmt sömu tölfræði 65,4% möguleika á því að komast áfram.

Seinni leikur Bayern og Liverpool fer fram þann 13. mars næstkomandi á Allianz Arena í Bæjaralandi.



Athugasemdir
banner
banner