Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. febrúar 2019 12:30
Elvar Geir Magnússon
Bonucci hafnaði Real Madrid fyrir endurkomu til Juventus
Leonardo Bonucci.
Leonardo Bonucci.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Leonardo Bonucci hefur opinberað það að hann hafi hafnað Real Madrid til að snúa aftur til Juventus.

„Já það er satt. Real Madrid hafði áhuga og ég er stoltur af því að þeir horfðu til mín," segir Bonucci sem var eitt ár hjá AC Milan.

„Það þýðir að ég hafi gert góða hluti í gegnum árin. En Juventus vildi fá mig aftur heim og ég hlustaði á hjartað á mér. Ég taldi rétt fyrir mig að fara aftur til Juventus."

Juventur mætir Atletico Madrid á morgun í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Ég er klár í slaginn. Ég hef verið að vinna með sjúkrateyminu og finn ekki neinn sársauka," segir Bonucci.
Athugasemdir
banner
banner