Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. febrúar 2019 15:00
Elvar Geir Magnússon
Eiginkona Icardi: Spilar bara ef hann fær bandið aftur
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Wanda Nara, eiginkona og umboðsmaður Mauro Icardi, hefur sagt Inter að láta Icardi fá fyrirliðabandið aftur eða hann muni aldrei spila fyrir félagið aftur.

Gazzetta dello Sport segir að Wanda hafi einnig krafist þess að Inter biðjist afsökunar á þeim þjáningum sem eiginmaður hennar hafi þurft að ganga í gegnum eftir að hafa verið sviptur fyrirliðabandinu.

Icardi hefur ekki spilað fyrir Inter í síðustu tveimur leikjum, síðan Inter tilkynnti að hann væri ekki lengur fyrirliði. Hann lék ekki gegn Rapid Vín og Sampdoria.

Þessi 26 ára argentínski leikmaður hefur verið sterklega orðaður við brotthvarf frá Inter í sumar en hann hefur verið í samningadeilum við félagið.

Sjá einnig:
Köstuðu grjóti í bíl Wanda Icardi - Börnin í aftursætunum
Athugasemdir
banner