Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. febrúar 2019 14:19
Elvar Geir Magnússon
Firmino mættur á Anfield - Virkaði hress
Firmino.
Firmino.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino er mættur á Anfield en þar er leikmannahópur Liverpool mættur í lokaundirbúninginn fyrir leik kvöldsins gegn Bayern München.

Brasilíumaðurinn æfði ekki í gær vegna veikinda en var í hópnum sem mætti á Anfield áðan.

Ekki er vitað hvort hann sé klár í að byrja leikinn en hann virkaði hress þegar hann mætti.

Virgil van Dijk er ekki með í kvöld vegna leikbanns og þá er fastlega búist við því að Dejan Lovren missi af leiknum vegna meiðsla. Reiknað er með að Fabinho byrji í hjarta varnarinnar í kvöld.

Georginio Wijnaldum og Xherdan Shaqiri eru einnig mættir á Anfield í undirbúning fyrir leikinn, sem hefst 20:00.

Þýskalandsmeistararnir verða án Jerome Boateng, Arjen Robben, Corentin Tolissio og Thomas Müller. Það er þó reiknað með að Kingsley Coman verði klár í slaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner