Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 19. febrúar 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Hákon Rafn á reynslu hjá Kalmar
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður Gróttu, er þessa dagana til reynslu hjá Kalmar í Svíþjóð.

Hákon verður hjá Kalmar við æfingar í rúma viku en hann spilar í dag með U19 ára liði félagsins gegn U19 ára liði Bröndby.

Þá mun Hákon einnig æfa með aðalliði Kalmar en liðið er í sænsku úrvalsdeildinni.

Hinn 17 ára gamli Hákon spilaði fimmtán leiki þegar Grótta fór upp úr 2. deildinni í fyrra.



Athugasemdir
banner
banner
banner