Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 19. febrúar 2019 15:30
Elvar Geir Magnússon
Ljóst hver dæmir leik Man Utd og Liverpool
Michael Oliver.
Michael Oliver.
Mynd: Getty Images
Manchester United og Liverpool eigast við í risaslag í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Michael Oliver verður dómari á leiknum og þeir Stuart Burt og Simon Bennett aðstoðardómarar. Andre Marriner verður fjórði dómari.

Oliver var dómari þegar Sviss vann Ísland 6-0 í Þjóðadeildinni.

Hann varð yngsti dómari ensku úrvalsdeildarinnar 2010, þá 25 ára.

Hann dæmdi síðast leik hjá Liverpool þegar liðið vann 5-1 sigur gegn Arsenal 29. desember. Þá dæmdi hann fyrsta leik Manchester United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær, 5-1 sigurinn gegn Cardiff.

Oliver hefur tvisvar dæmt viðureignir Manchester United og Liverpool; 1-1 jafntefli á Old Trafford 2017 og 3-1 United sigur í september 2015.
Athugasemdir
banner
banner