Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. febrúar 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Pogba um Solskjær: Hann treystir okkur og við treystum honum
Paul Pogba fagnar á skemmtilegan hátt í gær
Paul Pogba fagnar á skemmtilegan hátt í gær
Mynd: Getty Images
Paul Pogba var í skýjunum með 2-0 sigur Manchester United á Chelsea í enska bikarnum í gær en hann hefur verið besti maður liðsins síðustu mánuði.

Pogba er með 14 mörk og 10 stoðsendingar í 32 leikjum fyrir United á tímabilinu sem ætlar sér að berjast um enska bikarinn og Meistaradeild Evrópu.

Hann skoraði og lagði upp í 2-0 sigrinum á Chelsea í gær og er einn besti miðjumaður heims þessa stundina en hann þakkar norska stjóranum Ole Gunnar Solskjær sérstaklega fyrir.

Allt hefur breyst undir hans stórn og hefur liðið aðeins tapað einum leik frá því í lok desember en það tap kom gegn Paris Saint-Germain á dögunum.

„Við erum Manchester United og við spilum til þess að vinna titla," sagði Pogba.

„Solskjær tók við starfinu því hann vissi að hann gæti ráðið við þetta. Hann treystir okkur og við treystum honum. Við reynum okkar besta bara og við vitum endilega ekkert hvort við vinnum alla leiki en við förum í þá til að vinna," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner