Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. febrúar 2019 19:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin - Arnór Sig með tvennu í æfingaleik
Mynd: Getty Images
Það er frí í rússnesku úrvalsdeildinni fram í mars og hefur Íslendingalið CSKA Moskvu flúið kuldann sem er í Rússlandi og farið í hitann á Spáni.

CSKA spilaði í dag æfingaleik gegn FC Cartagena sem er á toppnum í riðli 4 í C-deild Spánar.

Svo fór að CSKA vann 3-1 sigur. Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson gerði tvö mörk fyrir CSKA í leiknum. Arnór í stuði á Spáni.

Hörður Björgvin Magnússon lék líka með CSKA í leiknum.

CSKA er í þriðja sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir 17 umferðir. Á toppnum er Zenit með fjórum stigum meira.

Hér að neðan má sjá mörk Arnórs í dag.


Athugasemdir
banner
banner