Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. febrúar 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Sjáðu mörkin hjá U17 kvenna: Glæsilegt langskot hjá Ídu
Ída Marín Hermannsdóttir.
Ída Marín Hermannsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
U17 ára landslið kvenna sigraði Írland 3-0 í vináttuleik sem fór fram í Fífunni í gærkvöldi.

Það voru þær Andrea Marý Sigurjónsdóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir sem skoruðu mörk Íslands.

Ída María, leikmaður Fylkis, skoraði fallegasta mark leiksins með glæsilegu langskoti.

Ída á ekki langt að sækja fótboltahæfileikana því foreldrar hennar, Hermann Hreiðarsson og Ragna Lóa Stefánsdóttir spiluðu bæði með íslenska landsliðinu á sínum tíma.

Liðin mætast aftur á miðvikudaginn. Sá leikur fer fram í Kórnum og hefst klukkan 12:00.

Hér má sjá mörkin úr leiknum í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner