Zlatan Ibrahimovic, framherji LA Galaxy, er ekki hræddur við að gefa út yfirlýsingar og hann lét í sér heyra þegar félagið kynnti nýjan búning sinn fyrir komandi tímabil í dag.
„Á þessu tímabili ætla ég að koma með svolítið fyrir ykkur. Af því að það er talað um að ég sé gamall þá ætla ég að reyna að slá öll met í MLS deildinni á þessu tímabili," sagði Zlatan.
Zlatan skoraði 22 mörk í 27 leikjum á sínu fyrsta tímabili með LA Galaxy og lagði upp tíu til viðbótar.

„Eftir eitt tímabil í MLS deildinni þá þekki ég hana betur. Ég er spenntur og hlakka til að byrja að spila aftur."
Athugasemdir