Fotbolti.net
19.02.20 - 22:01
Baldvin Már Borgarsson

Gústi Gylfa: Þeir setja hjartað í leikinn

Auglýsing
Gústi Gylfa: Þeir setja hjartað í leikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Þór Gylfason var sáttur með sína drengi í Gróttu eftir 1-1 jafntefli gegn FH í Lengjubikarnum fyrr í kvöld. Leikurinn fór fram í Skessunni, nýju knatthúsi FH-inga.
„Við fengum fullt útúr þessum leik, fengum eitt stig og við erum sáttir. Leikurinn var hægur í fyrri hálfleik en við stigum á bensíngjöfina í seinni og það var kraftur í okkur.''



Er meira spunnið í Gróttuliðið en sumir vilja meina?



„Já þetta eru flottir strákar og þeir leggja mikið á sig, þeir setja hjartað í leikinn, þeir gerðu það í dag og munu gera það í sumar.''



Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan, en þar ræðir Gústi leikmannahópinn nánar, hvort stefnan sé á að fá einhverja leikmenn og umræðu um erfitt sumar fyrir Gróttumenn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.