Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. febrúar 2021 14:18
Hafliði Breiðfjörð
Karólína Jack með slitið krossband
Karólína Jack verður ekki með Fylki í sumar.
Karólína Jack verður ekki með Fylki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karólína Jack mun ekki geta spilað með Fylki í Pepsi Max-deildinni í sumar en hún er með slitið krossband.

Hún gekk til liðs við Fylki frá HK/Víkingi 31. janúar síðastliðinn eftir að hafa misst af síðustu leiktíð vegna slitins krossbands.

Á æfingu með Fylki á dögunum varð hún svo fyrir því óhappi að slíta aftur krossband og því ljóst að hún getur ekki spilað meiri fótbolta á árinu.

Karólína er efnilegur leikmaður og er aðeins 19 ára gömul. Hún spilaði 14 leiki með HK/Víkingi í Pepsi Max-deild kvenna árið 2019 en missti sem fyrr segir af mótinu í fyrra eftir krossbandsslit.

Karólína spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir HK/Víking árið 2016 og hefur alls spilað 55 leiki í meistaraflokki og skorað 13 mörk.

Athugasemdir
banner
banner
banner