Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. febrúar 2021 18:45
Victor Pálsson
Mourinho: Vil að hann spili hverja einustu mínútu í hverjum einasta leik
Mynd: Getty Images
Harry Kane ætti að vera klár um helgina þegar Tottenham mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Kane var ekki með Tottenham í gær er Jose Mourinho og hans menn unnu 4-1 sigur á Wolfsberger í Evrópudeildinni.

Kane er að jafna sig af smávægilegu hnjaski en það hefur verið mikið álag á enska landsliðsfyrirliðanum á þessu tímabili.

„Liðið hefði getað verið sterkara með Harry Kane, Gio Lo Celso eða Sergio Reguilon en þeir gátu ekki ferðast," sagði Mourinho.

„Ég tel að hann verði klár [fyrir leikinn gegn West Ham] en svo reynslumikill leikmaður sem hefur meiðst í gegnum tíðina þekkir sinn líkama betur en allir aðrir."

„Hann veit að ég vil að hann spili hverja einustu mínútu í hverjum einasta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner