Varnarmaðurinn Ryan Shawcross hefur yfirgefið Stoke City eftir 14 ára dvöl hjá félaginu.
Hinn 33 ára gamli Shawcross átti að verða samnigslaus í sumar en hann komst að samkomulagi um að losna fyrr undan samningi.
Shawcross er sagður á leið til Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
David Beckham er eigandi Inter Miami en Phil Neville er nýráðinn þjálfari liðsins.

Keppni í MLS-deildinni hefst þann 3. apríl næstkomandi en Shawcross kemur með mikla reynslu í lið Inter Miami eftir að hafa spilað yfir 400 leiki með Stoke í úrvalsdeildinni og Championship deildinni.
Athugasemdir