banner
   þri 19. mars 2019 21:53
Brynjar Ingi Erluson
Courtois vill ekki fara til Manchester United
Thibaut Courtois vill ekki fara til Manchester United
Thibaut Courtois vill ekki fara til Manchester United
Mynd: Getty Images
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois hefur hafnað því að fara til Manchester United í skiptum fyrir David De Gea. The Sun greinir frá þessu.

Courtois gekk til liðs við Real Madrid frá Chelsea á síðasta ári en honum hefur ekki tekist að finna sig þar undir stjórn Julen Lopetegui og síðan Santiago Solari.

Zinedine Zidane ákvað að koma Madrídingum til bjargar á dögunum er hann tók við liðinu en hann ákvað að setja Keylor Navas í markið í 2-0 sigrinum á Celta Vigo.

Real Madrid hefur mikinn áhuga á því að fá David De Gea frá Manchester United og er talið að félagið hafi boðið Manchester United að fá Courtois í skiptum en belgíski markvörðurinn hafi þó hafnað því.

Hann hefur áhuga á að fara frá Real Madrid en hann vill þó helst komast til Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner