Magnús Gylfason, formaður landsliðsnefndar, er brattur fyrir nýja undankeppni sem fer af stað á föstudag. Hann er að sjálfsögðu mættur til Peralada á Spáni til að sjá um að allur aðbúnaður íslenska landsliðsins sé eins og best verður á kosið.
„Það er gaman að sjá hvað það er mikill kraftur í strákunum. Ég held að það sé mikill hugur í mannskapnum," sagði Magnús við Fótbolta.net í dag.
Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.

Hver er hugmyndin með að taka undirbúninginn í Peralada?
„Það var ákveðið að vera á grasi og vera hérna á Barcelona svæðinu til að vera stutt í Andorra. Það mætti vera aðeins hægari vindur en aðstæður eru frábærar."
Ísland hefur ekki unnið mótsleik síðan 2017.
„Það hefur byggst upp smá spenna um að fara að vinna leik. Það er mikil pressa á að vinna Andorra sem er langt fyrir neðan okkur á styrkleikalistanum. Eins og Freyr hefur komið inn á þá er þetta samt sýnd veiði en ekki gefin," sagði Magnús.
Honum lýst vel á riðil Íslands og segir að það yrði stórkostlegt að ná inn á þriðja stórmótið í röð. Viðtalið má sjá í heild i sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir