þri 19. mars 2019 23:28
Brynjar Ingi Erluson
Móðir Rabiot: Hann er fangi hjá Paris Saint-Germain
Adrien Rabiot er fangi
Adrien Rabiot er fangi
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Móðir franska miðjumannsins Adrien Rabiot er afar ósátt með hvernig Paris Saint-Germain kemur fram við hann og lætur mjög hörð ummæli falla um félagið í franska tímaritinu L'Equipe.

Rabiot var lykilmaður í liði Paris Saint-Germain og þá búinn að stimpla sig vel inn í franska landsliðshópinn en samningur hans á að renna út í sumar við PSG.

Hann var lengi vel í viðræðum við liðið um nýjan samning en svo slitnaði upp úr þeim og hefur hann ekki spilað leik síðan. Það er ljóst að hann yfirgefur PSG í sumar en félagið tilkynnti á þeim tíma að hann myndi ekki spila fleiri leiki.

„Adrien er fangi. Hann er í gíslingu hjá Paris Saint-Germain. Hvað er það næst? Þurrt brauð, vatn og dýflissa? Þetta er rosalega vont umhverfi og fótboltamenn eiga að spila fótbolta, ekki vera út í kuldanum," sagði Veronique Rabiot, móðir kappans.

Ekki nóg með það þá er Adrien einnig í banni til 27. mars fyrir að hafa kíkt út á djammið auk þess sem hann líkaði við færslu franska vinstri bakvarðarins Patrice Evra eftir tap PSG gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu.

Veronique er afar ósátt við hvernig komið er fram við son hennar en hún bendir á að brasilíski snillingurinn Neymar fái allt aðra meðferð. Rabiot var sektaður fyrir að mæta ekki í æfingaferð liðsins til Katar.

;,Mamma mín deyr 5. janúar og hún var jörðuð sex dögum síðar. Adrien átti að fara til Katar en jarðaförin var á föstudegi og hann átti að fara á sunnudegi. Ég hefði samt þurft að hringja aftur í félagið og kalla hann heim því ég fékk þær fréttir að faðir hans ætti ekki mikið eftir. Hvernig er hægt að kenna honum um og sekta hann þegar hann er að syrgja tvo fjölskyldumeðlimi?" sagði hún og spurði.

„PSG ræðst á hann og er ekki að horfast í augu við raunverulega vandamálið. Adrien er ekki að fara að gera neitt fyrr en PSG gerir eitthvað í málunum. Hann verður að hugsa um sjálfan sig og lifa lífinu. Hann er dæmdur fyrir að fara út að skemmta sér þegar félagið vill ekki einu sinni nota hann," sagði hún í lokin.

Rabiot getur valið úr mörgum stórliðum í sumar en hann hefur verið orðaður við Arsenal, Barcelona, Chelsea, Liverpool og Borussia Dortmund meðal annars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner