FH-ingar munu reisa nýtt knattspyrnuhús á næstu vikum og mánuðum sem mun bera heitið Skessan. Fyrir eru FH-ingar með knatthúsin sem bera heitin, Dvergurinn og Risinn.
Á Twitter-síðu FH-inga birtist í morgun myndskeið af því þegar flutningaskipið Monika kom til hafnar við Hafnarfjarðarhöfn með knatthúsið.
Á Twitter-síðu FH-inga birtist í morgun myndskeið af því þegar flutningaskipið Monika kom til hafnar við Hafnarfjarðarhöfn með knatthúsið.
„Undirbúningur og steypa er í gangi og mun húsið rísa á næstu mánuðum. Áfram FH! segir til að mynda í Twitter-færslunni sem fylgir myndskeiðinu.
Fyrsta skóflustungan var tekin um miðjan ágúst á síðasta ári.
Við fjölluðum um byggingu knatthússins árið 2017.
Kæru FH-ingar, það var stór dagur í gær þegar flutningaskipið Monika kom til í Hafnarfjarðarhafnar, með nýtt knatthús okkar FH-inga. Undirbúningur og steypa er í gangi og mun húsið rísa á næstu mánuðum. Áfram FH! #ViðerumFH pic.twitter.com/aAwDpiq59Z
— FHingar.net (@fhingar) March 19, 2019
Athugasemdir