Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 19. mars 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jorginho til Juve í skiptum fyrir Pjanic?
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri, stjóri Juventus, er mikill aðdáandi Jorginho. Sarri var með Jorginho á miðjunni þegar hann stýrði Napoli á Ítalíu.

Sarri var ráðinn stjóri Chelsea og var það eitt af fyrstu verkum stjórans að kaupa miðjumanninn yfir til Englands.

Nú eru uppi sögusagnir á Ítalíu um það að Juventus vilji mögulega skipta á Miralem Pjanic og Jorginho.

Pjanic færi því til Chelsea og Sarri fengi einn af sínum uppáhaldsleikmönnum til liðs við sig hjá Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner